-Er ekkert títt að handan?-
Það er ekki að ástæðulausu að ég varpa þessari spurningu fram. Þannig er mál með vexti að ég hef aðeins kíkt á þættina með Þórhalli miðli á Ztöð 2 og vissulega eru þeir fróðlegir en mér finnst bara aldrei neitt merkilegt koma fram. Hafa hinir látnu kannski bara ekkert merkilegra fram að færa annað en röfl og tuð yfir því að fólk sé að stressa sig of mikið og eitthvað í þeim dúr?
Ég hefði mun meiri áhuga á að vita hvað er "handan við móðuna miklu" heldur en að fá að vita að ég ætti að hætta að hafa áhyggjur af reikningunum eða eitthvað slíkt.
Eða ganga þættirnir kannski miklu frekar út á að reyna að sanna það að Þórhallur hafi einhvers konar miðilshæfileika? Hljóma ég skeptískur? Er hægt að "hljóma" einhvern veginn í skrifuðum texta? Þetta eru miklu frekar spurningarnar sem hinir látnu ættu að vera að svara......
.....anywho.
Talandi um sjónvarp. Ég verð að segja að ég öfunda þá svolítið sem koma til með að ná útsendingum Stöðvar 3, sem ég næ ekki af því að í hverfinu mínu er Breiðband en ekkert Fjölvarp. Stöð 3 ætlar nefnilega að sýna nokkra snilldarþætti eins og Who´s line is it anyway sem eru frábærir spunaþættir (ekkert líkir spunaþáttunum sem voru sýndir á RÚV einu sinni við litla hrifningu, og m.a.s. við litla hrygningu) og svo bresku sketsa þættirnir Fast show sem er eitthvurt fyndnasta sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið. Ég get reyndar huggað mig við það að ég á slatta af þeim þáttum á vídeó (format sem kom á undan DVD), þannig að það er smá huggun harmi gegn.
Svo verða þarna einhverjir fleiri þættir eins og Alf, Seinfeld, Letterman og að sjálfsögðu Simpsons.......fæ ég borgað fyrir að skrifa þetta? Allavega einhver bezta kynning sem þessi blessaða stöð hefur fengið.
Þar sem ég hef alltaf haft smá samviskubit yfir því að kunna ekki á hljóðfæri, heldur bara á trommur, hef ég tekið þá meðvituðu ákvörðun að kenna sjálfum mér á píanó.....ásamt Sævari frænda. Við erum nýbyrjaðir að gutla í þessu en stefnum á einhvern góðan píanókonsert eftir ca. mánuð. Eitthvað hafði Rachmaninov borið á góma, maður sér til, stefnir allavega á Bítlana svona til að byrja með. Eins og maðurinn sagði:
"A journey of a thousand miles begins with one step."
Svo minni ég á tíuþúsundasta gestinn sem nálgast líkt og óð fluga. Viðkomandi gestur má láta vita af sér í kommenta kerfinu. Væri gaman að heyra vitnisburð frá honum eða henni......þ.e. ef fólk hefur enst að lesa þessa vitleysu.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home