-Magnað-
Ég brá mér á hina stórskemmtilegu Billboard síðu hvar hægt er að rýna í hvað er að gerast í Bandarísku tónlistarlífi, sjá lista yfir mest seldu plötur, smáskífur og margt fleira. Mjög fróðleg og oft á tíðum skemmtileg síða.
Þarna rakst ég á auglýsingu fyrir eitthvað Green card lottery hvar maður á möguleika á að vinna dvalar -og atvinnuleyfi í einhvern ákveðinn tíma og á auglýsingunni stendur "Who is the US president?" og svo eru valmöguleikar, þrjár myndir af Clinton, Bush og Aanold. Hvað ætli séu margir innfæddir Bandaríkjamenn sem mögulega myndu klikka á þessari spurningu? Ég hugsa að það sé alveg hið þokkalegasta hlutfall.
Maður ætti kannski bara að sækja um fyrst maður getur í það minnsta svarað þessari spurningu.
Ég rak augun í fleira á þessari síðu. Sá það t.d. að Some Devil, sólóplata Dave Matthews fór rakleitt í fimmta sæti yfir mest seldu plötur síðustu viku og skákar þar m.a. Limp Bizkit. Eigi amalegur árangur það. Hef sagt það áður og segi það enn, þessi plata er helv...góð.
Annars er ég að fara að byrja á ritgerð um Múhameð spámann. Á að skila henni eftir tvær vikur þannig að ég þykist hafa ágætis tíma. Skrifaði reyndar ritgerð um hann þegar ég var í Flensborg þannig að ég kannast aðeins við efnið. Svo eru fleiri verkefni sem á að skila á næstunni þannig að það er næg vinna framundan, því eins og Kristján Bersi sagði alltaf: "Nám er vinna og skólinn er vinnustaður."
Hver einasti nemandi sem var í skólanum meðan Bersi var skólameistari heyrði þessa setningu í það minnsta einu sinni á önn.
Svo var ég að sjá að glæsilegum íþróttaferli Önnu Kournikovu er lokið. Stúlkan hefur þurft að hætta keppni vegna bakmeiðsla og það má ljóst vera að þetta er gríðarlegt áfall, ekki bara fyrir tennisheiminn heldur gjörvallan íþróttaheiminn. Maður getur vart gert sér í hugarlund alla þá sigra sem Anna átti framundan í tennislistinni enda óumdeildur ambassador íþróttarinnar sem kom með nýjar víddir í leikinn. Hennar verður sárt saknað af tennisvellinum.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home