-Tilvísanaskrár og heimildalistar-
Fór í próf í dag í fagi sem á máli fagmanna kallast Aðferðir I. Prófið í dag var í svokallaðri ritgerðasmíð og gekk mér eiginlega bara alveg ótrúlega vel. Mér fannst í það minnsta prófið mjög auðvelt en svo er náttúrulega spurning hvort maður kom efninu temmilega skiljanlega frá sér.
Annars var ég að sækja mér tónlist á netinu í kvöld og er reyndar að því ennþá. Kannski ekki í frásögur færandi nema að ég rambaði á útgáfu af gamla Pink Floyd slagaranum Comfortably numb í flutningi David Gilmour og Kate Bush (!) og er hún tekin upp í fyrra. Gilmour er einmitt gítarleikari í Pink Floyd og það má segja að hann hafi uppgötvað Kate Bush á sínum tíma þegar hún var fjórtán eða fimmtán ára.
Allavega mjög flott útgáfa af þessu lagi þó að hljómgæðin séu ekkert rosaleg.
Er árið 2003 alþjóðaár síamstvíbura? Hefur einhver flett því upp? Ég man bara ekki eftir að hafa séð aðra eins umfjöllun um síamstvíbura eins og er búið að vera á þessu ári. Virðist vera eitthvað tízkufyrirbæri.
Annars er ekkert títt. Mér líður vel og allt er gott.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home