sunnudagur, nóvember 02, 2003

-Bráðum koma blessuð.....jólin?-
Ég rak augun í það í kvöld að einn eða tveir nágrannar mínir eru búnir að setja upp jólaljós í gluggana. Skv. almanaki Háskóla Íslands er ennþá bara 2.nóvember. Er þetta ekki aðeins of langt gengið? Eigum við ekki í það minnsta að halda þakkargjörðarhátíðina áður en við förum að skreyta allt um kring? Erum við ekki annars búin að taka upp þann sið frá Amríku, svona eins og Hallóvín og Valentínusardag?
Annars held ég að þetta skreytingaræði sé komið frá IKEA, enda byrja jólin þar í byrjun október og fólk er væntanlega búið að kaupa allt skrautið um miðjan okt. og veit svo ekkert hvað það á að gera við það næstu tvo mánuðina, þannig að þá er allt eins gott að hengja það bara upp.

Annars gleymdi ég að minnast á það á föstudaginn að sá dagur var ansi hreint merkilegur. "Pff, og fyrir hvaða sakir" spyr einhver gamall maður sig útí bæ (insert gamlakallarödd). Jú, fyrir þær sakir að á föstudaginn voru liðin fimm ár síðan haldnir voru tónleikar/dansiball á Vegamótum hvar hljómsveitin Funkmaster 2000 tróð upp. Þessir tónleikar voru einmitt teknir upp og gefnir út á hljómdisk ca. mánuði síðar. Skemmst er frá því að segja að platan seldist ekki í bílförmum, ekki einu sinni bílfarmi en ætti öngvu síður að vera skyldueign á öllum betri heimilum. Já svo sannarlega jólagjöfin í ár.
Það má nálgast smá hljóðdæmi af þessum disk á heimasíðunni hans Kristján Orra sem einmitt var með mér í téðri hljómsveit á þessum tíma, en svo hætti Kristján í bandinu til að fara utan og nema kontrabassafræði við akademíuna í Kaupinhavn og gengur líka svona ljómandi vel. Til lukku með það Kristján.

Það er að koma út heill hellingur af geisladiskum og DVD diskum um þessar mundir sem maður "þarf" að fjárfesta í. Á morgun er að koma út best of diskur með REM, svo er kominn út DVD diskur með allskonar efni um John Lennon, Dave Matthews Band er að gefa út þrefaldan disk og tvöfaldan DVD disk af tónleikum sem voru haldnir í Miðgarði í Nýju Jórvík fyrr í haust, Let it be...naked kemur svo út seinna í mánuðinum og svo er þriðja serían af Simpsons komin á DVD. Allt þetta langar mig allsvakalega til að eignast og bendi ég bara á reikningsnúmerið 0140-26-070817 í Hafnarfjarðar útibúi Landsbankans ef fólk vill styrkja mig í þessu máli. Munið: Hver króna skiptir máli og Guð elskar glaðan gjafara og sælla er að gefa en þiggja.

Góðar stundir.....í guðs friði.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com