miðvikudagur, október 29, 2003

-Ja hérna hér-
Ég sá á mbl.is áðan að um síðustu helgi fór fram heimsmeistarakeppnin í steinn-pappír-skæri (enska: rock-paper-scissors). Þetta hlýtur að vera heimskulegasta heimsmeistarakeppni í heimi og hvað eru mörg heim í því? Að sögn beitti sigurvegarinn sóknartaktík en sá sem tapaði lagði meiri áherslu á vörnina! Ha! Hvernig er sóknartaktík í þessum leik?.....og þá í framhaldi af því hvernig er varnartaktík?
Ef ég vissi ekki betur þá hefði ég haldið að þessi frétt kæmi af Baggalútur.is.

Ég verð að mæla með laginu Ást á pöbbnum (ég held örugglega að það heiti það) með listakonunni Leoncie, sem ég var að ná mér í á netinu. Þetta er með því besta sem ég hef heyrt frá henni og í raun ótrúlegt að sjá hana toppa sjálfa sig svona aftur og aftur. Á snilldin sér engin takmörk?

Fyrir áhugasama þá hafa síðustu nætur liðið án þess að mig hafi dreymt fyrrverandi vinnustaði og þá sérstaklega álver. Vonast ég til þess að ég sé kominn yfir þetta skelfilega skeið í lífi mínu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com