fimmtudagur, október 23, 2003

-Kvikmyndahaust-
Það er búið að tala um íslenskt kvikmyndavor í svolítið langan tíma en ég er að upplifa mitt eigið kvimyndahaust um þessar mundir. Er búinn að fara á heilar fjórar myndir núna á síðustu tveimur þremur mánuðum. Það gerir þá heildar bíóferðir á árinu.....fjórar.
Fór á myndina Kill Bill í gær ásamt þremur góðum drengjum og ég verð bara að segja að hún er algjör snilld. Maður bíður bara yfir sig spenntur eftir framhaldinu.

Það stefnir allt í það að ég sé að fara í Idol partý á morgun. Drengirnir í fótboltafélaginu Kóngarnir ætla að hittast og styðja okkar mann Óla Má í baráttunni og fleyta honum áfram í næstu umferð. Nú verða allir að kjósa Óla á morgun. Óli rúllar þessu upp.

Nú er víst orðið móðins að eiga sér uppáhalds lið í frönsku knattspyrnunni (allavega móðins hjá lokuðum hópi manna). Þar sem ég vil varla vera minni maður en bróðir minn og slíkt fólk þá hef ég ákveðið að byrja að halda með liðinu Troyes ( eða eins og Höddi Magg bar það fram Trrua, erfitt að skrifa þetta, errin eru borin fram langt niðrí hálsi). Ég ætla bara að halda mig við Trojes
Það má því búast við umfjöllun um þetta lið og helstu stjörnur liðsins þegar fram í sækir. Áfram Troyes!!!

Ég hef stundum gert í góðu glensi að hafa hér létta poppgetraun. Nú ætla ég að bregða útaf vananum og koma með eina lauflétta getraun sem við skulum kalla almenns eðlis. Þetta getur verið spurning um hvað sem er milli himins og jarðar. Verðlaun verða af verri endanum og m.a.s. alls óvíst að veitt verði yfir höfuð verðlaun. En endilega taka þátt. Það myndi gleðja mig svo óskaplega mikið. Hér kemur spurningin:

Í hvaða stjórnmálaflokki var Aldo Moro forsætisráðherra Ítalíu og hver urðu afdrif Moro?

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com