laugardagur, október 25, 2003

-Musica di Charlie Chaplin-
Ekki gekk nógu vel hjá honum Óla í Idol í gær, enda lagið kannski ekki það heppilegasta fyrir svona keppni. En hann stóð sig öngvu síður glæsilega.
Reyndar var ég nú ekki alveg sammála úrslitunum í gær. Fannst gaurinn sem varð efstur ekkert fara rosalega vel með hið frábæra lag Dock of the bay. Samt ágætis söngvari.

Ég fór í smá Idol teiti í gær og svo var kíkt á hverfispöbbinn eftir það. Mér tókst að gleyma símanum mínum heima og ótrúlegt en satt þá leið mér frekar illa að vera ekki með hann með mér. Hversu fáránlega er maður orðinn háður þessu litla tæki? Svo þegar ég kom heim í nótt þá var hann bara búinn að slökkva á sér (sennilega útaf leiðindum bara) og þá hafði ég misst af tveimur símtölum og einu sms-i. Ég var niðurbrotinn maður. Reyndar missti ég ekkert af sms-inu, það var vissulega ennþá inná símanum en stundin var liðin, þetta gullna móment sem maður hefur til að svara slíku skeyti.
Ég veit að fólk skilur hvaða lífsreynslu ég er að fara í gegnum hérna. Fæ ég vitnisburð?

Ég ætti að fara að fá borgað frá álverinu í Straumsvík. Í annað skiptið á stuttum tíma dreymdi mig að ég væri kominn í vinnu á þeim frábæra stað aftur. Hefur einhver hugmynd um hvað það gæti merkt að dreyma álver.....two times!?

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com