laugardagur, nóvember 08, 2003

-Halló halló!-
Mikið mættu lesendur þessarar síðu læra af lesendum Ríkissjónvarpsins. Þar er í gangi söfnun alls ekki óáþekk þeirri sem ég setti á laggirnar hér um daginn. Niðurstöðurnar eru hins vegar á öngvan veg áþekkar. Hjá RÚV hafa safnast einhverjar milljónir en ég hef ekki einu sinni fengið krónu með gati. Já réttlæti heimsins er svo sannarlega misskipt.

Í gær sótti ég mér nokkur lög á netið og í þeim hópi er lag/verk eftir Frank nokkurn Zappa sem heitir því skemtilega skemmtilega nafni G-Spot Tornado. Ég sá Sinfóníuhljómsveit Íslands spila þetta stykki á tónleikum fyrir einhverjum tveimur eða þremur árum síðan en hafði ekki heyrt það núna í dálítinn tíma. Ég mæli eindregið með þessu, afskaplega grípandi og skemmtilegt verk.

Í gær fór ég einnig á tónleika ásamt Kristjáni félaga mínum. Eins og ég hafði áður sagt frá voru þetta nk. útgáfutónleikar hjá Ómari Guðjóns á Jazzhátíð. Flottir tónleikar og tónlistin sem Ómar er að semja mjög kúl. Svo spillir náttúrulega ekki fyrir að vera með Óskar Guðjóns og Þórð Högna með sér í bandi. Gaman gaman.

Á morgun er svo að sjálfsögðu stærsti leikur tímabilsins í fótboltanum þegar Bezta lið í heimi tekur á móti Man Utd. eða Scum Utd. eins og einhverjir gárungar kalla þá. Mitt lið mun að sjálfsögðu rúlla þessum leik upp.
Gleði

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com