-Skortur á tíðindaleysisvöntun-
Síðustu dagar hafa að mestu leyti farið í skólastúss. Hef hangið á bókhlöðu þjóðarinnar og flett í handbókum. Gríðarlegt stuð.
Í gær héldu foreldrar mínir heilmikið fjölskylduboð í tilefni þess að mamma hennar mömmu (s.s. amma mín) hefði orðið hundrað ára á föstudaginn síðastliðinn. Mikið af fólki og kökur og læti. Reyndar eru svona fjölskylduboð ekki minn tebolli. Þekki þetta fólk svo sem ekkert sérstaklega mikið og líður hálf einkennilega í svona sitúasjón.
Í þessum skrifuðu orðum gengur á með mestu snjókomu sem sést hefur í einhvern tíma. Hvílíkur býsnavetur sem þetta ætlar að verða. Það á bara að vera snjór í einn til tvo daga á ári og þá um jólin, sem nota bene eru þann 24.des. ef einhver var farinn að halda að þau yrðu fyrr þetta árið.
Gærkvöldinu eyddi ég svo í góðra vina hópi heima hjá bróður mínum hvar horft var á gamlar kvikmyndir frá Hafnarfirði fyrri tíma. Aðallega myndir frá 17.júní og sjómannadagshátíðahöldum í bænum. Elstu myndirnar voru frá ca. 1944 og þær yngstu eitthvað í kringum 1955-60. Ótrúlega gaman að sjá þessar myndir og sjá hvað bærinn hefur breyst rosalega mikið á þessum tíma.
Athyglisverðast var þó að sjá myndir sem teknar voru í Krýsuvík og áttu að sýna unglingavinnu. Satt best að segja verða þessir drengir sem þarna voru að vinna seint kallaðir unglingar, þeir hafa verið á aldrinum 8-12 ára og vinnunni verður sennilega best lýst sem nokkurs konar þrælavinnu. Indversk börn hefðu allavega prísað sig sæl yfir því að þurfa ekki að vera í unglingavinnu Hafnarfjarðar á þessum tíma.
Ég var að fá þær góðu fréttir núna rétt í þessu að pakkinn góði sem ég hafði pantað frá Amríku, þ.e. diskar með DMB væru farnir af stað áleiðis til landsins. Ættu að berast fljótlega eftir helgi og mikið hvað það verður gaman þá.
Á morgun verður svo siglt inní síðustu viku þessarar annar í skólanum og við tekur tæplega tveggja vikna upplestrarfrí. Á laugardaginn er ég svo að fara út að borða með vinnunni minni og svo eftir það sekkur maður sér í bækurnar. Líf og fjör framundan.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home