mánudagur, nóvember 17, 2003

-Halló krakkar!-
Mikið er nú gaman að sjá ykkur öll aftur. Langt síðan ég var hérna síðast og löngu kominn tími til að hripa niður einhvurn texta.

Í dag kom út fjórtánda breiðskífa beztu hljómsveitar allra tíma. Hljómsveitin heitir að sjálfsögðu The Beatles og skífan ber heitið Let it be...naked. Búið er að endurvinna plötuna, henda út öllum ofhlaðna grautnum sem Phil Spector morðingi (?) setti yfir nokkur lög, búið að bæta við lagi og henda öðrum út.
Ég keypti þennan disk í dag og verð að segja að útkoman er til hreinnar fyrirmyndar. Hljómurinn mun betri en á gömlu plötunni og lögin njóta sín mun betur í þessari útgáfu. Svo spillir ekki fyrir (sérstaklega fyrir Bítla nörda eins og mig) að aukadiskur fylgir með þar sem eru birt brot frá æfingum, bæði talað mál og svo brot af lögum sem þeir voru að leika sér með á þessum tíma.
Í alla staði mjög eigulegur diskur og hreinlega skyldueign fyrir alla unnendur góðrar tónlistar.
Eitt stakk mig svolítið í augun þegar ég opnaði diskahulstrið. Það var orðsending frá útgefanda plötunnar þar sem fólk er góðfúslega beðið um að vera ekki að miðla disknum á netinu eða brenna hann og gefa vinum og vandamönnum. Svo fylgdi eftirfarandi setning: "It´s hurting the artists who created the music. It has the same effect as stealing a disc from a store without paying for it." Það held ég að ólögleg miðlun tónlistar Bítlanna sé að knésetja greyið Paul og Ringo og þeirra fjölskyldur. Paul er nú ekki nema ríkasti listamaður Bretlands. Ekki það að ég sé að styðja ólöglega dreifingu á tónlist, slíkt er viðurstyggð og ætti ekki að vera stundað af neinum.

Ég tók eftir því í dag á leið minni heim úr skólanum að búið er að rífa ljóta húsið sem stóð við Reykjavíkurveginn, fyrir ofan gatnamótin á mótum Hafnarfjarðar og Garðabæjar....skildi einhver þessa setningu? Þetta hús hefur staðið þarna alveg frá því ég man eftir mér og það er eitthvað ákveðið tómarúm sem myndast hjá manni þegar svona fastir punktar tilverunnar hverfa á braut. Snökt.
Annars var síður en svo einhver prýði í þessu húsi, enda búið að standa til í mörg ár að rífa það.
Langaði bara svona að koma þessu að.

Mig langar að koma tveimur spurningum á framfæri, væri jafnvel gott að fá svör við þeim en það er svo sem ekkert nauðsynlegt.
1. Er búið að flýta jólunum í ár?
2. Fyrst það þarf að vera með einhvern brandara veðurkall í Íslandi í dag, var þá ekki hægt að fá einhvern fyndnari en þennan sem kallaður er Siggi Stormur?

Það er ekki að ástæðulausu sem ég hendi þessum spurningum á loft.

Á morgun er svo að koma út tónleikaupptaka með Dave Matthews Band, þrefaldur CD og tvöfaldur DVD. Ég er þegar búinn að panta þennan pakka og bíð bara spenntur eftir því að þetta detti inn um lúguna.
Það er bara hérumbil allt að gerast.

Jai Guru Deva Om.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com