-Hörpu þinnar stef, spinnur tónavef-
Hversu margir vissu það að Steven Van Zandt sem leikur Silvio Dante í Sopranos, var m.a. meðlimur í E-street bandinu hans Brúsa frænda? Ekki ég að minnsta kosti, enda hef ég ekki horft á einn einasta þátt af Sopranos, hélt alltaf að þetta væri þáttur um sópran söngkonur og lagði ekki í að kíkja á þetta. En þarna hafið þið fróðleiksmola dagsins......og Davíð, ekki koma með eitthvað besserwiss á kommenta kerfið núna.
Á morgun (eða í dag tæknilega, þar sem það er komið fram yfir miðnætti) er síðasti kennsludagur í skólanum. Við tekur prófalestur og í framhaldi af því koma svo prófin. Ég mun ekki hefja lestur fyrr en á sunnudaginn þar sem helgin er meira en fullbókuð.
Á morgun (eða í kvöld tæknilega, þar sem það er komið fram yfir miðnætti) mun Hið Nýja Sögufélag Hafnarfjarðar halda myndbandakvöld þar sem sýnd verður mynd um Hafnarfjörð liðins tíma. Nú þegar er orðið uppselt á þessa sýningu, sem fram fer heima hjá bróður mínum, en ósóttar pantanir verða seldar milli fimm og sjö. Að lokinni film sýningu mun ég halda fyrirlestur um hið merka Rafha mót, sem var knattspyrnumót sem haldið var í Hafnarfirði um miðja síðustu öld, þar sem mættust FH og Haukar. Þetta mót lagðist hins vegar af rétt eftir 1950 vegna leiðinda kærumála.
Ég hef löngum barist fyrir því að þetta mót verði endurvakið en hef hingað til talað fyrir daufum eyrum. Vonandi að fljótlega verði breyting þar á.
Mér hafði láðst að nefna það að á mánudaginn fékk ég allstóra sendingu frá Amríku, barst til landsins sjóðandi heit með Gullfossi. Í sendingu þessari voru geisladiskar og dvd diskar með tónleikum stórhljómsveitarinnar Dave Matthews Band og þykir þetta mikill happafengur. Nú veit ég hins vegar að margir lesendur þessarar síðu eru síður en svo aðdáendur þessarar hljómsveitar, sumir ganga meira að segja svo langt að leggja fæð á hana, og þar af leiðandi ætla ég ekki að æra óstöðugan með meira tali um þessa diska. En góðir eru þeir.
Í lokin smá létt poppgetraun.
Hvaða listamaður (eða kona) flutti lagið Pack die Badehose ein?
Já þessi er nú í léttari kantinum.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home