-Rytmablús var það heillin-
Horfði aðeins á evrópsku tónlistarverðlaun sjónvarpsstöðvarinnar MTV (emm té vaff) á Popptíví í kvöld. Máske ekki í frásögur færandi......nema hvað að þar var einhver blökkumaður að tala um tónlistarstefnu sem undanfarin ár hefur gengið undir nafninu R&B (ar enn bí) og sá sem var að þýða þáttinn ákvað að nota hið gamla og fallega orð rytmablús yfir þessa stefnu. Þetta þótti mér ákaflega gaman að sjá enda örugglega ekki margir af yngri kynslóðinni sem vita hvað R og B stendur fyrir....djö hvað maður er farinn að hljóma eins og gamall maður. Annars gæti íslenska heitið yfir Rythm and blues hugsanlega verið Taktur og tregi. Hljómar mjög kjarnyrt. Skoða hvað Pétur þulur Pétursson hefur að segja um það.
Mitt lið í enska boltanum, Liverpool, eru að gefa frá sér hvern titilinn á fætur öðrum þessa dagana. Fyrst fauk úrvalsdeildartitillinn, nánast áður en keppnin hófst og nú í kvöld ákváðu drengirnir að tapa fyrir einhverju liði sem kallast Bolton í deildarbikarkeppninni. Þó ber ekki að örvænta (ekki strax allavega) því enn eru tveir titlar alveg raunhæfur möguleiki.....en síðan hvenær hefur fótbolti snúist um það að vinna titla?
Ég verð að viðurkenna það að ég er einhver sorglegasti bloggari inter-netsins þessa dagana. Prófalestur gerir mann bara hvumpinn og leiðinlegan og auk þess drífur ekkert á daga manns nú um stundir og því frá engu að segja. Ég skal reyna að taka mig taki og fara að hressa upp á þetta. Sýnið mér bara smá þolinmæði, mínir dyggu lesendur (Steinar og Védís).
Þangað til næst.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home