-Bráðum kemur betri tíð...-
Jæja krakkar, hvað syngur svo?
Jólin komin og nánast farin aftur, strákurinn fékk margt góðra gjafa og er bara temmilega sáttur við sitt eftir hátíðina. Síðustu dagar hafa nánast bara farið í að sofa, éta, horfa á bíómyndir og éta og sofa. Strákurinn fór á vigtina í fyrradag og þar sást tala sem aldrei hefur sést áður á vigtinni. Ég hef alltaf verið lítill og grannur og nettur og hef svo sem ekki stórar áhyggjur en maður þyrfti kannski að fara að hreyfa sig örlítið.
Memo to self: Stefna á hreyfingu á næsta ári.
Framundan er svo gamlárskvöld og ég hef ekki hugmynd um hvernig því verður eytt. Ef einhver lumar á partýi væri gaman að heyra af því, ég er alltaf maður í partý.
Ég sá stjörnuspánna mína fyrir næsta ár (eins og frændi minn getur staðfest eru stjörnuspár hávísindalegar og áreiðanlegar eftir því) og þar stendur að ég eigi eftir að breyta um starfsvettvang í maí eða júní (gæti hugsanlega verið að ég klári skólann og fari að vinna um þetta leyti?). Svo á ég víst von á einhverri góðri summu í september og fer í eitthvað ferðalag í október. Þetta þykja mér góð tíðindi enda er ég farinn að leggjast yfir ferðabæklinga og tilboð, bara spurning hvert maður ætti að skella sér.
Hver vill annars koma með til útlanda í október?
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home