-Hvað er svona fyndið?-
Ég datt inná hinn allhressa og hárbeitta þjóðlífsgamanþátt Spaugstofuna í kvöld. Þeir drengir eru alltaf í sama gríninu og mikið sprellað á þeim bænum. Í lok þáttarins í kvöld sýndu drengirnir vel valin mistök sem hafa orðið við gerð þáttarins. Í einu atriðinu var einhver sem sprakk úr hlátri, minnir að það hafi verið Pálmi, og þá kemur þessi gullna setning útúr Randveri: Pálmi, hvað er svona fyndið?
Ég held að smiðurinn Örn Árnason hefði ekki getað hitt naglann betur á höfuðið í þessu tilviki. Nákvæmlega, hvað er svona fyndið? Ef þessi setning lýsir ekki þessum þætti í hnotskurn þá veit ég ekki hvað. En hvað er ég að röfla, ég er greinilega í minnihluta þjóðarinnar þar sem þessi þáttur er með vel yfir 50% áhorf, sem er eiginlega ótrúlegt.
Fór í gær á hið árlega jólaglögg hjá Símanum sem allajafna er haldið rétt fyrir jól á hverju ári. Þarna var bara hin besta stemning og bara allt eins og það gat best orðið. Fór nú samt tiltölulega snemma heim svo ég yrði temmilega sprækur í dag. Get nú ekki alveg sagt að það herbragð hafi virkað sem skyldi, einhver örlítill þynnkuskítur í manni.
En annars bara rólegheit í kvöld og ætti því að vera sprækasti maður landsins á morgun, enda veitir ekki af í lestrinum.
Mér sýnist sem hin margumtalaða línuívilnun sé á góðri leið með að verða að veruleika. Þetta er mikið gleðiefni því núna hætta menn vonandi að tönnlast á þessu blessaða orði í hverjum einasta fréttatíma. Eins og frægt er orðið náði ljósmyndari Baggalúts einstæðum myndum af línuívilnun og má sjá þær myndir á heimasíðu þess ágæta miðils.
Nóg komið af röfli og almennum leiðindum í bili.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home