þriðjudagur, desember 23, 2003

-It was the best of times, it was the worst of times-
Lýkur þá bloggfríi miklu sem stóð mun lengur en almennt gengur og gerist í bransanum, það á sér þó sínar eðlilegu skýringar. Þessi tími sem liðinn er síðan ég bloggaði síðast af alvöru hefur þó verið hinn sögulegasti í manna minnum. Allt upp í loft á Alþingi, Keikó dauður (er Sophia dauður?), Saddam kominn í hendur hinnar frelsiselskandi þjóðar, Fréttir.com farin yfir móðuna miklu og svo ofan á allt saman er kristsmessa að skella á.
Tók prófin með vinstri, enda skrifa ég með þeirri góðu hendi og hef gert síðan elstu menn muna. Mér finnst eins og mér hafi gengið alveg þokkalega en svolítið erfitt að segja til um það, gæti þess vegna verið kolfallinn, en tilfinningin er samt jákvæð gagnvart þessum prófum.

Einhver mestu vonbrigði síðustu daga eru þau að hinn býsna skemmtilegi fjölmiðill frettir.com hefur lagt upp laupana. Ég hef verið dyggur lesandi í dágóðan tíma, alveg frá því þetta var bara ósköp venjulegt blogg á frettir.blogspot.com.
Manni dettur helst í hug að Jón Ásgeir hafi keypt miðilinn útaf markaðnum, enda stóð Fréttablaðinu mikil ógn af þessum skelegga miðli.
Við hér á síðunni hörmum þessar málalyktir og verður tengillinn hér vinstra megin hafður áfram uppi við í þeirri von að frettir.com snúi aftur.

Ég get upplýst dygga lesendur um það að ég er blessunarlega búinn að versla allar jólagjafir þetta árið. Það er fátt jafn leiðinlegt og að fara í Kringluna á þessum tíma, innan um þúsundir manna. Nú situr maður bara í jakkafötunum, vatnsgreiddur og fínn og bíður eftir að klukkan slái sex á aðfangadag.

....ég hlakka svo til.

Góðar stundir.



0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com