-The rain in Spain is mainly in the plain-
Fyrsta einkunn vetrarins komin í hús og ekki get ég kvartað undan henni. 8,5 fyrir aðferðafræði, alveg hinn ásættanlegasti árangur þó svo að ég hefði alveg getað fengið hærri einkunn ef ég hefði ekki klúðrað smá hluta prófsins. Vona bara að restin verði í svipuðum dúr.
Nú styttist í að Evrópumót landsliða í bakhrindingum og boltakasti hefjist, sem sumir hafa jafnvel gengið svo langt að kalla þjóðaríþrótt okkar Íslendinga. Af þessu tilefni hefur hinn sívinsæli vefur handbolti.blogspot.com verið endurvakinn og þar verður lífleg umfjöllun um mótið auk þess sem litið verður á mótið frá öðrum hliðum en oft er gert. Það er fjölmiðlasamsteypan dvergar.blogspot.com sem býður upp á þennan stórskemmtilega vef og mæli ég með að menn kíki á hann reglulega eftir því sem nær dregur.
Fyrst ég er á annað borð farinn að tala um íþróttir er ekki úr vegi að minnast á það að bezta lið í heimi sigraði loks á Stamford Bridge í gær og hef ég fulla trú á að héðan af verði ekkert sem stöðvi liðið.
Ég komst að því í gær að sjónvarpsstöðin Skjár 2 mun leggja upp laupana á allra næstu dögum og muni "sameinast" Skjá 1. Held ég að þar með sé sett heimsmet í skammlífi einnar sjónvarpsstöðvar. Mér reiknast til að hún hafi verið í loftinu í u.þ.b. tvo mánuði (korrekt mí iff æm vrong).
Að lokum vil ég nefna það að nú eru að fara í gang allsherjar tiltektir hér á síðunni og verður nokkrum dauðum linkum hent út og aðrir nýir settir inn. Um er að ræða einhverjar umfangsmestu breytingar sem hér hafa átt sér stað síðan kommenta kerfið komst í gagnið.
Já það eru spennandi tímar framundan.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home