-Nostalgía-
Ég komst að því í dag að gamli góði gosdrykkurinn Póló er kominn á markað aftur. Þessi frábæri gosdrykkur fæst allavega í Bónus, veit ekki hvort hann hefur fengist lengi en þetta uppgötvaði ég í dag.
Það þurfti ekki nema einn sopa til að koma mér aftur á miðjan níunda áratuginn, mig vantaði bara sítt að aftan og Wham! í græjurnar.
Nú verður það bara Póló í öll mál.
Áfram Póló!
Að lokum langar mig að koma á framfæri afsökunarbeiðni. Tilefni hennar eru ummæli sem ég lét falla í þarsíðasta pistli og fjallaði um leigubílaferð og Davíð félaga minn. Komið hefur í ljós að ásakanir þær sem settar voru fram voru byggðar á miklum og leiðinlegum misskilningi og bið ég Davíð innilegrar afsökunar.
Skipuð hefur verið nefnd undir forystu Huttons lávarðar og mun hún skila af sér skýrslu á næstu mánuðum sem vonandi hreinsar Davíð endanlega af þessum ásökunum auk þess sem farið verður ofan í saumana á því hvernig þessar ótrúlegu ásakanir urðu til og hvort tilefni þykir til að draga einhvern til ábyrgðar vegna þeirra.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home