föstudagur, febrúar 13, 2004

-Gamalt fólk er vænisjúkt!-
Hví slengi ég þessari fullyrðingu fram? Jú það er vegna þess að ég hef áralanga reynslu af því að afgreiða gamalt fólk. Auðvitað á þetta ekki við um allt gamalt fólk en mjög marga.
Það líður nefnilega varla sá dagur að það komi ekki einhver gömul manneskja sem heldur að síminn sinn sé bilaður (í 99,99% tilvikum er það bull og vitleysa) og í framhaldi af því telur þetta sama fólk að síminn sinn sé hleraður! Af hverju í ósköpunum ætti sími einhverrar konu um nírætt að vera hleraður? Hver í ósköpunum gæti haft hag af því?

...í þeim töluðu orðum kom enn einn gamall kall í búðina og hélt því staðfastlega fram að síminn sinn væri bilaður af því að hann hringdi ekki. Kom þá í ljós að síminn var á silent...djísús!

...en svo brosir maður bara og segir takk sömuleiðis og góða helgi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com