-Um stafsetningu-
Hvernig dettur fullorðnu fólki í hug að skrifa kinlýf og hreyndír? Mér er það með flestu ef ekki öllu óskiljanlegt. Fyrir þá sem átta sig kannski ekki á hvaða orð þetta eiga að vera þá eru þetta hin íslensku orð kynlíf og hreindýr. Þetta virðast bara vera allt önnur orð þegar þau eru skrifuð svona hrikalega vitlaust.
Ég get skilið fólk (upp að vissu marki) sem setur einfalt i í staðinn fyrir y, eins og t.d. firirgefa eða eitthvað álíka, en hitt finnst mér alveg ótrúlegt.
Hvar er Pétur Pétursson þulur þegar maður þarf á honum að halda?
Með kveðju
Málfarsráðunautur síðunnar
Góðar stundir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home