mánudagur, febrúar 09, 2004

-Vá!!!-
Strákurinn vakti frameftir í nótt og horfði á hluta af Grammy verðlaunahátíðinni. Hátíðin byrjaði glæsilega, Prince og Beyoncé tóku einhverja syrpu af Prince lögum, mjög flott allt saman. Næsta atriði þar á eftir var það sem einhverjir myndu kalla a match made in heaven. Þarna mættust sem sagt á sviðinu engir aðrir en Sting, Dave Matthews og sjálfur Pharrell Williams á trommurnar, allt algjörir snillingar og eins og það hefði ekki verið nóg þá tóku þeir gamla Bítlaslagarann I saw her standing there! Það vantaði bara frelsarann endurfæddann og að jólasveinninn mætti og færi að útdeila gjöfum. Maður var hálfpartinn eftir sig eftir þetta atriði.
Það sem ég sá af hátíðinni eftir þetta var svona upp og ofan, mikið af söngkonum í einhverjum leikfimiæfingum með röddina...sem er einstaklega óþolandi. Reyndar áttu Justin Timberlake og Arturo Sandoval ágætis atriði þar sem JT eins og ég kalla hann sýndi ágætis hæfileika á Rhodes píanó, leynir greinilega á sér drengurinn.

En það var svo sannarlega gaman að þessu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com