fimmtudagur, febrúar 12, 2004

-Kontrý og alternatív-
Strákurinn brá sér í dag í Skífuna og kíkti á útsöluna hjá þeim. Labbaði út tveimur diskum ríkari, en hvorugur var á eiginlegri útsölu. Anyhow. Diskarnir sem ég keypti mér voru annars vegar nýi diskurinn hennar Noruh Jones, rólegur og þægilegur diskur, mætti kannski aðeins tóna niður kontrý áhrifin en annars ágætis diskur.
Hinn diskurinn er svo með ensku hljómsveitinni Alfie. Ég sá eitthvurt myndband með þeim á MTV sjónvarpsstöðinni um daginn og kolféll fyrir drengjunum. Er ekki alveg búinn að klára að hlusta á diskinn en það sem ég hef heyrt er mjög kúl. Mæli með laginu No need, mjög flott.

Annars var þessi útsala alveg að gera góða hluti, ef ég hefði haft rýmri fjárráð þá hefði ég eflaust smellt mér á nokkra titla þarna. Annars þarf maður ekki alltaf að vera að kaupa sér tónlist þegar maður hefur netið, en það er önnur saga.

Svona hljómaði þá sagan um það þegar ég fór á útsöluna í Skífunni í dag.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com