fimmtudagur, febrúar 12, 2004

-Ég þoli ekki bíla!-
Ég var byrjaður að skrifa pistil með þessari fyrirsögn en varð svo snögglega að hætta því, en hef ákveðið að halda fyrirsögninni.
Forsaga málsins er sem sagt sú að bíllinn minn dó fyrr í kvöld, var bara steindauður. Það fyrsta sem mér datt í hug var að alternatorinn væri bilaður, hljómar í það minnsta flott að segja það auk þess sem maður lítur mjög vel út loksins þegar maður hittir á það að alternatorinn er raunverulega bilaður.
...allavega.
Ég og karl faðir minn sammæltumst um það að rafgeymirinn væri ónýtur (eða hann sagði það og ég kinkaði kolli svona eins og mér hefði dottið það í hug). Ég sá fyrir mér handónýtan morgundag þar sem ég þyrfti í fyrsta skipti í mörg ár að nýta mér almenningssamgöngur þær sem í boði eru á höfuðborgarsvæðinu. Fyrst í vinnu, svo úr vinnu í skólann og svo úr skólanum og heim...ekki heillandi plan.
Svo þegar ég var sestur við tölvuna og við það að fara að semja pirringspistil þá hóar sá gamli í mig og við ákveðum að kíkja aðeins betur á þetta, og viti menn þá var bara eitthvurt sambandleysi við rafgeyminn sem við (hann) vorum snöggir að leysa, og bíllinn tja bara eins og nýr.
Ég er glaður í dag, og lífið brosir við mér...en eftir sem áður þá þoli ég ekki bíla!

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com