sunnudagur, febrúar 29, 2004

-Aukadagur-
Mikil raus-leti hefur einkennt síðustu daga. Stefni ekkert sérstaklega á að bæta úr því, hugurinn er einhvers staðar annars staðar en í rausheimum þessa dagana. Fyrir þá sem furða sig á þessari miklu notkun á orðinu raus skal ég útskýra. Það var nefnilega frétt í sjónvarpinu í gær hvar rætt var m.a. um bloggsíður. Greinilegt var á fréttinni að málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins er búinn að liggja yfir þessu mæta orði, blogg, og hefur komist að þeirri niðurstöðu að affarsælast væri að notast við hið gamla góða íslenska orð raus í staðinn. Hef ég því tekið þá meðvituðu ákvörðun að fara að notast við þetta fallega orð hér á þessari síðu.

Með tilliti til þess að í dag er 29. febrúar, dagur sem við fáum allajafna að njóta á fjögurra ára fresti, gat ég ekki látið hjá líða að setja inn örfá orð bara í tilefni dagsins. Mér skilst að samkvæmt einhverri gamalli hefð (?) geti konur beðið sér maka á þessum degi, öfugt við aðra daga ársins!, og samkvæmt hefðinni má maðurinn ekki neita konunni en getur víst keypt sig lausan með gjöfum. Ekki hef ég ennþá fengið neitt bónorð upp í hendurnar en það lifir ennþá ca. klukkutími af deginum þannig að það er aldrei að vita.....ekki það að ég eigi von á einhverju slíku.

Annars fór ég á lokahóf/árshátíð hjá fótboltaliðinu mínu, Kóngunum, og var þar gríðargóð stemning. Grillað, drukkinn bjór og bara almennt haft gaman að hlutunum. Laugardagurinn var frekar rólegur, tók nokkra bjóra heima hjá brósa en tók því annars bara rólega.
Næsta helgi verður hins vegar ansi strembin, fer í 25 ára afmæli á föstudeginum og í innflutningspartý á laugardeginum. Með hliðsjón af því þá geri ég fastlega ráð fyrir að ég verði ekki til stórræðanna á sunnudeginum og bið því vini og vandamenn að taka tillit til þess :)

Nú styttist allverulega í Óskarinn, ég er ekkert gríðarlega spenntur fyrir þessu en það væri samt gaman ef Bill Murray fengi styttuna að þessu sinni. Ég hef reyndar ekki hugmynd um hvernig hann stendur sig í Lost in translation, mér bara finnst hann eiga þetta skilið þó ekki væri nema fyrir frábæra frammistöðu í Groundhog day fyrir áratug eða svo.

Meira verður ekki rausað í bili, og ekkert á vísan að róa með það hvenær næsta raus birtist.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com