fimmtudagur, febrúar 19, 2004

-Gráa albúmið-
Ég held það viti flestir í hvað fyrirsögnin hérna að ofan er að vísa. Þetta er sem sagt nafnið á plötunni sem DJ Dangermouse (ég held að hann kalli sig það) setti saman úr The Black Album með Jay Z annars vegar og plötunni The Beatles með samnefndri hljómsveit, en sú plata hefur frá fyrsta degi gengi undir nafninu The White Album.
Ég sem sagt sótti mér þessa samsuðu plötu í dag, auðvitað hér á inter-netinu. Útkoman er eiginlega miklu betri og flottari en ég þorði að vona. Bítlarnir eru náttúrulega heilög stofnun fyrir mér þannig að ég var frekar skeptískur á þetta brölt alltsaman, en eins og áður segir þá er útkoman bara nokkuð flott. Mæli alveg með því að fólk tékki á þessu ef það á þess kost.
Ég vil þakka Gumma Jóh fyrir að benda mér á sem ég vil þakka fyrir að benda mér á hvar væri hægt að sækja þetta.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com