föstudagur, febrúar 20, 2004

-...en talandi um...-
...Bítla og Bítlakóver þá er ég í þessum töluðu (já!) orðum að hlusta á glæsilega ábreiðslu af Bítlalagi. Ábreiðuna gerðu drengirnir í Earth Wind & Fire og lagið er hið sígilda Got to get you into my life, en það lag er einmitt af plötunni Revolver sem kom út þ. 5. ágúst árið 1966, skömmu eftir að Englendingar höfðu orðið heimsmeistarar í fótbolta. Já, 1966 var svo sannarlega gott ár á Englandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com