föstudagur, mars 05, 2004

-I love this game!-
Strákurinn brá sér á körfuboltaleik í kvöld, hvar áttust við Haukar og Keflavík. Einhvern veginn hefur það atvikast svo að þeir örfáu körfuboltaleikir sem ég hef farið á eru alveg æsispennandi og úrslitin ráðast yfirleitt ekki fyrr en í síðasta skoti. Hvort ég er svona naskur á að velja rétta leiki eða hvort að körfubolti er svona spennandi og skemmtileg íþrótt skal ég ekki segja.
...bara ekki láta Davíð vita að ég hafi farið á leikinn, hann á eflaust bara eftir að fara að röfla um hvað körfubolti sé miklu skemmtilegri íþrótt en fótbolti, sem er náttúrulega bara bull.

Annars var ég að enda við að festa kaup á miðum á Bítlatónleika Sinfóníunnar (hví er eigi sagt simfóníunnar?), held að þetta verði flottir tónleikar, enda Bítlarnir besta band allra tíma. Þessir tónleikar eru laugardaginn 13. mars kl. 17 sem gerir það að verkum að ég kemst ekki í partýið fyrir árshátíðina hjá vinnunni. Það gerir nú ekki svo mikið til, maður fórnar flestu fyrir Bítlana.

En talandi um árshátíðina, þá munum við Lagerlúðarnir með Jón "500 kall" Sigurðsson í broddi fylkingar stíga á stokk og flytja einhver gömul og góð lög eins og við gerðum í fyrra. Ég efast ekki um að þetta atriði eigi eftir að slá í gegn, líkt og það gerði í fyrra, enda einkar frambærileg hljómsveit á ferðinni.

Framundan er svo bara helgi full af ýmsum atburðum, 25ára afmæli og innflutningspartý. Stefnan er að eyða eins litlu og mögulegt er, enda er ansi lítið í buddunni þessa dagana og ansi mikið sem á eftir að gerast í mánuðinum.

Góða helgi og góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com