þriðjudagur, mars 02, 2004

-Undarlegt...-
Ég tyllti mér á bókhlöðu þjóðarinnar í dag og þykir það ekki í frásögur færandi þar sem ég sit þarna góðan part úr vikunni við lestur og skriftir að öllu jöfnu, en í dag gerðist svolítið undarlegt.
Þar sem bílastæði eru allajafna af skornum skammti við bókhlöðuna þá þarf maður oft að leggja í smá fjarlægð og "leggja á sig" smá göngutúr. Dagurinn í dag var engin undantekning og þurfti ég að leggja nokkrum skrefum frá byggingunni. Svo þegar ég kem út eftir að hafa eytt rúmum þremur tímum þarna inni þá er bara búið að færa bílinn minn þannig að hann stendur hálfpartinn uppá grasi rétt upp við bygginguna! Ég get ekki neitað því að ég varð meira en lítið hvumsa er ég sá bílinn.
Það fyrsta sem ég gerði var náttúrulega að skoða bílinn gaumgæfilega að innan enda er stór partur af diskasafninu mínu yfirleitt í bílnum og ég hefði orðið verulega fúll ef einhvern disk hefði vantað, en svo var sem betur fer ekki.
Ég er bara að vona að það sem hafi gerst sé það að bíllinn minn sé orðinn eins og Herbie gamli (hver man ekki eftir Bjöllunni Herbie?) og sé kominn með sinn eigin vilja og hafi ofboðið hvað ég þurfti að labba langa leið til og frá bókhlöðunni.

...hin skýringin gæti verið sú að af einhverjum orsökum hafi einhver brýn nauðsyn verið fyrir því að færa bílinn minn og einhver hafi hreinlega tekið sig til og fært hann úr stað....hljómar furðulega en maður veit aldrei.

Svo gerðist annar undarlegur atburður í dag. Mér var boðið í fermingarveislu hjá frænda mínum sem ég hef aldrei heyrt um og vissi ekki einu sinni að væri til. Ég varð nokkuð hvumsa (í annað skiptið á einum degi) þegar ég sá boðskortið. Þar sem fermingarveislur eru síður en svo minn tebolli þá held ég að ég hafi eitthvað annað að gera þennan dag...próflestur gæti hljómað sannfærandi...held að þessi "nýi" frændi minn komi ekkert sérlega mikið til með að sakna þess að Sverrir frændi hafi ekki komið í veisluna. Auk þess man ég ekki eftir að hann hafi komið í mína veislu.

Held ég láti þetta gott heita af undarlegheitum í dag.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com