föstudagur, mars 19, 2004

-Ég vann, ég vann!!!-
Ótrúlegt en satt þá var ég einn af fjórum einstaklingum svo voru dregnir út í Popplandi á Rás tvö í dag og vann hvorki meira né minna en tvo miða á Damien Rice tónleikana í kvöld plús diskinn hans nýja. Hvílík og önnur eins snilld....og ég sem vinn aldrei neitt svona.
Þetta kollvarpar öllum plönum sem ég hafði gert fyrir kvöldið, nú þarf að byrja að plana frá grunni aftur.

Svo vantar mig náttúrulega einhvern til að koma með á tónleikinn. Er einhver þarna úti sem hefur áhuga á að koma með mér á eitt stykki tónleik í kvöld?

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com