-Þetta var ekki svona erfitt í fyrra-
Fótboltafélagið Kóngarnir héldu sína fyrstu æfingu í kvöld fyrir komandi átök í sumar. Ég hef varla hreyft mig síðan í september í fyrra og það sást greinilega. Held ég hafi verið búinn eftir ca. tíu mínútur, en mikið rosalega var þetta gaman...mæli hiklaust með þessu.
Á laugardaginn er svo fyrsti æfingaleikurinn. Ég held það verði ansi fróðlegt að fylgjast með því.
Annars er það bara bólið núna og pottþétt verstu harðsperrur í heimi á morgun.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home