mánudagur, mars 29, 2004

-Dánarfregnakeppnin-
Í nokkur ár hefur bróðir minn haft þann leiða ávana að tilkynna mér fregnir af dauða fína og fræga fólksins. Oft hef ég verið vakinn með símhringingum, sms-um eða jafnvel bara að hann hafi vakið mig í eigin persónu með setningum á borð við: "Heyrðu Sverrir, hún/hann x er látin(n)". Þannig tilkynnti hann mér fyrstur manna um dauða Díönu prinsessu, Guðrúnar Katrínar, George Harrison, Halldórs Laxness og fleiri frægra manneskja. Hefur þetta gengið svo langt að ég hef oftar en ekki verið smeykur að svara í símann þegar hann hefur hringt, af ótta við að einhver fræg manneskja sem ég hefði ef til vill dálæti á væri látin.
Þess vegna varð það mér sérstakt "gleðiefni" í morgun þegar ég sá að stórleikarinn Peter Ustinov hafði látist og engin hringing hafði borist frá bróður mínum. Er skemmst frá því að segja að ég snaraði mér á msn og tilkynnti bróður mínum hátt og snjallt "Heyrðu Helgi, hann Peter Ustinov er látinn." Yesssss hugsaði ég með mér, leikurinn er loksins farinn að snúast mér í hag.
Nú er staðan sem sagt 12-1 bróður mínum í vil, en ég finn að vindáttin er að snúast, það eru breytingar í aðsigi.

Núna bíður maður bara spenntur eftir næsta fræga andláti...spennan er að magnast.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com