-Fótboltablogg-
Var að koma heim úr Keflavíkinni hvar liðið mitt Kóngarnir lék gegn liði sem kallast Geirfuglarnir. Ekki var þessi ferð til fjár því mitt lið laut í gervigras 0-3. Hálf daufur leikur og úrslitin endurspegla held ég ekki gang leiksins. En Kóngarnir eru samt byrjaðir að rúlla aðeins áfram og það er gott. Sjálfur átti ég tvö skot að marki í leiknum, annað fór hátt yfir en hitt var varið næsta auðveldlega.
...en það er gaman að þessu og það er það sem þetta snýst um.
Svo þarf ég að fara aftur til Keflavíkur á fimmtudagsmorgun, þarf að skutla foreldraeiningunni upp á flugvöll þar sem þau ætla að heiðra Dani með nærveru sinni næstu daga....og mér sem leiðist svo að keyra til Keflavíkur.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home