-Woe is me-
Ég fór í gærkvöldi út á Keflavíkurflugvöll og sótti bróður minn sem var að koma heim frá Lundúnum. Þetta var sem sagt í sjötta skiptið á innan við mánuði sem ég þarf að keyra þessa leið, woe is me.
En í þetta skiptið fékk ég nú svolítið fyrir minn snúð. Bróðir minn kom nefnilega færandi hendi með dvd diska handa litla bróður sínum (sem er ég). Þessir diskar innihalda annars vegar safn af því besta frá Flying Circus þáttum þeirra Monty Python manna sem eru einhverjir fyndnustu þættir sem gerðir hafa verið frá upphafi siðmenningar, plús sýning sem þeir héldu í Aspen fyrir nokkrum árum síðan...svona smá kombakk sýning, mjög gott allt saman.
Hins vegar er svo um að ræða disk sem rekur fyrstu Ameríkuferð drengjanna í hljómsveitinni The Beatles sem ætti nú að vera Íslendingum að góðu kunn en hljómsveitin var einkar vinsæl á sjöunda áratugnum fyrir lög eins og Words of love, What you´re doing og Not a second time. Sannarlega mikill happafengur þar á ferðinni.
Það sem er hins vegar grábölvað við að fá svona fallegan pakka núna er að þetta gefur manni svo helv...góða afsökun fyrir því að taka sér góða pásu frá lærdómnum, og varla má maður við því. Woe is me.
Fleira var það vart í bili.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home