miðvikudagur, maí 26, 2004

-Ég vann!-
Ég var aldeilis að detta í lukkupollinn núna rétt í þessu. Tilefnið var það að í gær var léttur spurningaleikur í gangi hérna innan fyrirtækisins og voru þrír heppnir keppendur dregnir út og verðlaunaðir. Ég var einmitt einn af þessum þremur og var að vinna mér inn forláta SonyEricsson T610 síma, besti sími síðasta árs að mati einhvers blaðs. Þetta þykir mér ekki amalegt og get ég núna loksins lagt til hliðar Nokia 3310 símann minn sem hefur þjónað mér ágætlega síðustu árin.

...svo styttist í að tuttuguþúsundasti gesturinn komi inn á þessa síðu. Viðkomandi verður að sjálfsögðu leystur út með veglegum gjöfum, en á meðal vinninga er forláta Nokia 3310 sími. Sá eða sú sem verður númer 20.000 er vinsamlegast beðin(n) um að láta vita af sér í kommentakerfinu.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com