miðvikudagur, júní 16, 2004

-Ég segi draumfarir mínar ekki sléttar!-
Ég á það til að dreyma ansi undarlega drauma á næturnar...þegar ég er sofandi...því þá dreymir mann helst...altsvo.

Síðastliðna nótt dreymdi mig að ég var að taka þátt í nokkurs konar Idol keppni sem haldin var í Kringlunni eða einhverri mjög svipaðri verslunarmiðstöð. Ég var sem sagt kominn í þriggja manna úrslit og á meðal þeirra sem voru að keppa á móti mér var einhver gaur sem ég þekki ekki frekari deili á, en hann var langvinsælasti keppandinn, svo vinsæll að það var bara púað á mig og þriðja keppandann þegar verið var að kynna okkur. Lagið sem ég ætlaði að syngja í þessum úrslitaþætti var að sjálfsögðu(!) lagið Pamela eftir hljómsveitina Toto og hafði ég miklar áhyggjur af því að lagið væri alltof hátt fyrir mig þannig að ég var mjög stressaður fyrir því að fara að syngja það.
Til að róa taugarnar fór ég með Jóa félaga mínum í ostabúð sem staðsett var í verslunarmiðstöðinni, og þar var Denni félagi okkar að vinna og hann gaf okkur nokkra osta til að smakka....og þá vaknaði ég og orðinn alltof seinn í vinnuna.

Kæri sáli, hvað merkir þessi draumur?

...þetta slær þó ekki út handbolta drauminn fræga...en þessi er þó nokkuð góður :)

Góðar stundir...já og gleðilega þjóðhátíð.

Með bestu kveðju
Sverrir Þór.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com