mánudagur, júní 14, 2004

-Abu Dhabi-
Evrópumótið í fótbolta er byrjað af fullum krafti og það er þvílík unun að horfa loksins á almennilegan fótbolta eftir að hafa þurft að horfa uppá hinn hræðilega íslenska fótbolta. Þetta eru bara tvær mismunandi íþróttagreinar...spurning hvort einhverjar þjóðir eiga eftir að taka upp hina fáránlegu íþrótt, íslenskan fótbolta.

Talandi um íslenskan fótbolta, liðið mitt Kóngarnir var að spila í kvöld og unnum við ansi sannfærandi sigur 3-1 á liði sem kallast Hungangstunglið...ég er farinn að halda að við séum bara besta liðið í þessari deild. M.a.s. Davíð skoraði í kvöld...

...og talandi um Davíð. Hann og Stefán unnu loksins Trivial mótið sem hefur verið í gangi núna á annað ár. Við spiluðum á föstudaginn, ég og Jói á móti hinum drengjunum. Ég og Jói unnum fyrsta spilið og staðan því orðin 9-5 fyrir hina samanlagt. En eftir æsispennandi spil númer tvö náðu Davíð og Stefán að leggja okkur og tryggðu sér Trivial meistaratitilinn, og ég og Jói þurfum að reiða fram sinn hvorn kassann af bjór...djös rugl.

...en það styttist í 17.júní og maður þarf að fara að blása upp blöðrur og búa til fána og kaupa kandýfloss og hvað þetta heitir allt saman.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com