þriðjudagur, júní 15, 2004

-Boltinn byrjar að rúlla-
Í kvöld hófst Evrópumót landsliða formlega þegar mínir menn í þýska landsliðinu mættu Hollendingum í fyrsta alvöru leik mótsins. Skemmst er frá því að segja að Hollendingum tókst með mikilli heppni að innbyrða eitt stig eftir að mínir menn, sem stilltu upp mjög sókndjörfu liði, höfðu haft mikla yfirburði á vellinum.
Ljóst má vera eftir þennan leik að fá lið eiga eftir að stöðva þýsku hraðlestina...og ekki eiga Bandaríkjamenn eftir að koma öðrum Evrópulöndum til bjargar að þessu sinni.

Gleðilegt Evrópumót!

...og enn styttist í 20þúsundasta gest síðunnar...vegleg verðlaun í boði.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com