-Nú fer að draga til tíðinda-
Nú styttist allsvakalega í að tuttuguþúsundasti gesturinn detti inn á síðuna. Eins og glöggir lesendur muna eflaust þá eru vegleg verðlaun í boði fyrir viðkomandi. M.a. glæsilegur Nokia 3310 gsm sími, með örlítið snjáðu takkaborði og rafhlöðu sem gæti verið betri. Sá eða sú sem verður númer 20.000 er vinsamlegast beðin/nn
um að senda mér skjámyndina...það er ekki nóg að segjast hafa verið númer 20.000, við hér á ritstjórninni viljum fá beinharðar sannanir.
...en í mér býr fló...eða kannski frekar á mér býr fló. Einhvers staðar í vinnunni virðist sem starri (ekki gamli bassaleikarinn í Jet black Joe) hafi búið sér til hreiður með tilheyrandi flóm (eða var það flæm?) sem hafa bitið mig, og reyndar fleiri sem vinna með mér, allhressilega. Ég er búinn að telja einhver tíu bit út um allan skrokk...og kláðinn sem því fylgir er óheyrilega hressandeh og skemmtilegur...en nóg um það.
Á dögum eins og í dag ættu öll þjónustufyrirtæki að vera lokuð, í það minnsta verslanir Símans...óþolandi að vinna inni þegar svona hrikalega gott veður er.
Að þessu sinni ætla ég ekkert að minnast á fótbolta...en minni á verðlaunaleikinn.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home