laugardagur, júní 19, 2004

-Hvílíkur leikur!-
Í dag fór fram einhver magnaðasti leikur Evrópukeppninnar fram að þessu. Þjóðverjar léku að þessu sinni með tvo sóknarmenn...sem þykir nýlunda og var greinilegt að spilað skyldi til sigurs, jafnteflis að minnsta kosti. Lettar aftur á móti voru vel skipulagðir og spiluðu stífan varnarleik af mikilli íþrótt. Fóru leikar þannig að hvorugt lið náði að koma knettinum í netið og úrslitin því 0-0 í hreint út sagt mögnuðum leik.
Eftir þessa miklu fótboltaveislu gat það svo ekki farið öðruvísi en að seinni leikurinn ylli manni töluverðum vonbrigðum. En Tékkar og Hollendingar eiga þó heiður skilinn fyrir að reyna í það minnsta að spila fótbolta...en leikurinn varð þó aldrei nema svipur hjá sjón í samanburði við fyrri leikinn.

Að lokum langar mig svo að benda áhugamönnum um góða tónlist á lagið Sunshine með hljómsveitinni Keane...bara ansi hreint fínt og flott lag...margir gagnrýna þetta band fyrir að vera of líkir Coldplay og Travis og slíkum böndum, en hverjum er ekki skítsama um það...ef músíkin er góð altsvo.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com