fimmtudagur, ágúst 19, 2004

-Úr djúpinu...-
Fögur loforð um aukið blogg hafa fokið út í hið góða veður sem verið hefur hér á landinu undanfarið. Ástæður þess eru margþættar, jafnvel margþættari en ástæðurnar fyrir falli Rómarveldis...jafnvel margþættari en ástæðurnar fyrir skrýðingardeilunum á miðöldum...ég er sem sagt búinn að vera að lesa undir próf undanfarið og hef auk þess frá afskaplega litlu að segja, því meður.

Nú er einungis vika þangað til ég mun heiðra Lundúnarbúa með nærveru minni. Þangað hef ég ekki komið í ein fjögur ár og þykist ég viss um að heimsóknar minnar sé beðið með mikilli eftirvæntingu. Meira að segja viðbúnaðarstigið vegna hryðjuverkaárása var hækkað um daginn og þykist ég sjá ákveðið samhengi milli þess og minnar heimsóknar til Englendinga.

Í tilefni af því að Ólympíuleikarnir eru komnir "heim" til Grikklands aftur þá finnst mér að það eigi að taka upp þann sið sem var haldið í heiðri í Grikklandi hinu forna að keppendur á leikunum væru naktir...allavega að endurvekja þessa hefð í strandblaki kvenna...myndi gera mikið fyrir þessa annars mjög glæsilegu íþrótt.
...ég er ekki viss um að þetta myndi vekja mikla lukku í kúluvarpi kvenna reyndar...

Modernus, fyrirtækið sem ég réð til að sjá um teljarann á síðunni, voru að gera einhverjar svakalegar endurbætur á kerfinu hjá sér um daginn, með þeim afleiðingum að teljarinn núllstilltist. Mun þessi atburður hafa í för með sér gífurleg áhrif á 25þúsundasta gest síðunnar keppnina sem var í fullum gangi. Ljóst má vera að sigurvegari keppninnar verður vart krýndur fyrr en í ársbyrjun 2007 ef allt gengur að óskum....en við bíðum bara spennt á meðan og fylgjumst með teljaranum rísa hærra og hærra...

...es ist gut, voru hinstu orð hins fræga heimspekings Immanuel Kant og held ég að ég taki bara undir þau orð, þetta er gott...í bili allavega.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com