miðvikudagur, ágúst 25, 2004

-London calling-
Í fyrramálið legg ég loksins af stað til Lundúna ásamt brósa og frændanum. Þar ætlum við að eyða næstu sex dögum eða svo við að anda að okkur menningu Englendinga, sem eins og flestir vita er æði fjölskrúðug.
Stefnt er á að skella nokkrum myndum af og til á mbloggið mitt svo að aðdáendur mínir geti fylgst með hverju fótmáli okkar drengjanna. Legg ég því til að menn smelli á linkinn hér til hliðar svona af og til næstu dagana.

Annars bara...

...góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com