-Í félagsskap fræga fólksins-
Það var eitt sem ég gleymdi að minnast á í pistlinum um Lundúnarferð okkar drengjanna. Við rákumst nefnilega á ógrynni af frægu fólki á rölti okkar um borgina góðu.
Fyrstan ber að telja Þórhall miðil, sem við rákumst ekki bara einu sinni á heldur tvisvar. Okkur sýndist hann bara vera einn á ferð...en áttuðum okkur svo fljótt á því að Þórhallur er náttúrulega aldrei einn á ferð...nudge nudge! Say no more, say no more.
Því næst rákumst við á Þórhall (Gunnarsson alveg örugglega held ég) úr Ísland í dag og frú, en þau voru bara á röltinu á Bond street eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Núna mætti einhver talnaglöggur maður reikna út líkurnar á því að hitta tvo Þórhalla í einni og sömu ferð til Lundúna.
Síðast en alls ekki síst þá rákumst við á engan annan en Ricky Gervais sem leikur aðalhlutverkið í þáttunum The Office. Hann var bara að labba í rólegheitunum á Tottenham Court Road, í jogging-galla með einhvurja konu sér við hlið...máske sína eiginkonu. Þótti mér þetta ansi merkilegur hittingur og mun þetta líklega verða mér ofarlega í minni um langa hríð.
Komið þér sælir herra Gervais!
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home