þriðjudagur, október 05, 2004

-Plötukaup-
Í dag gerði ég mér ferð inní Kringlu til þess að festa kaup á nýju REM plötunni, líkt og ég hafði minnst á í frægum pistli frá því í gær.
Eins og mín er oft von og vísa þegar ég kem í plötubúð þá gat ég ekki látið mér nægja að kaupa bara einn disk, ég rak nefnilega augun í annan disk í hillunni sem var hvorki meira né minna en Smile með Brian nokkrum Wilson sem hvað þekktastur er fyrir að hafa verið höfuðpaur Beach Boys hér í eina tíð.
Þessi diskur á sér allmikla og sérstæða sögu, og er ekki að ósekju kallaður frægasti diskur (eða plata jafnvel) sem aldrei kom út.

Vinna við þessa plötu hófst árið 1966, skömmu eftir að Beach Boys höfðu gefið út meistarastykkið sitt, Pet Sounds. Brian Wilson, sem var í mikilli samkeppni við sjálfa Bítlana á þessum tíma, þóttist heldur betur hafa skákað drengjunum frá Liverpool með þeirri plötu, einungis til að uppgötva það að skömmu síðar höfðu Bítlarnir bætt um betur og gefið út plötuna Revolver, sem allajafna þykir með fremstu skífum poppsögunnar.
Brian hófst þá handa við að taka upp lög fyrir plötu sem átti að verða besta plata í heimi og miklu betri en nokkuð sem þessir Bítlar myndu nokkru sinni ná að búa til, meðal þessara laga er til að mynda lagið Good Vibrations sem löngum hefur þótt eitt allra besta lag Beach Boys.

Upptökur stóðu vel fram á árið 1967 en þá var platan, sem þá þegar hafði fengið titilinn Smile, sett í biðstöðu af einhverjum sökum. Nokkur laganna voru þó endurunnin og gefin út ásamt öðrum nýjum lögum þá um sumarið á plötu sem fékk nafnið Smiley Smile...sama sumar kom svo út plata Bítlanna um Pepper liðþjálfa (besta poppskífa allra tíma) og það varð öllum ljóst að Beach Boys höfðu tapað keppninni við drengina fjóra frá Liverpool...enginn gerði sér þó betur grein fyrir því en Brian Wilson sjálfur (var þetta ekki dramatískt?).
Sagan segir að þegar plata Bítlanna kom út hafi Brian Wilson lokað sig inni í viku og ekki rætt við neinn. Nokkrum árum seinna missti hann það svo alveg og hefur aldrei náð sér alveg að fullu eftir það.

...en nú er sem sagt búið að hljóðrita þessa plötu á þann veg sem hún átti að hljóma fyrir tæpum 40 árum síðan og ég er kominn með gripinn í hendurnar...og nú ætla ég að skella henni á fóninn og athuga hvort þetta er eins magnað stykki og haldið hefur verið fram í gegnum tíðina.

Þess ber að geta að við gerð þessa annars fróðlega pistils studdist ég ekki við neinar heimildir, aðrar en þær sem ég geymi í kolli mínum...og ef einhver BB aðdáandi hefur eitthvað við þetta að athuga þá skal ég glaður taka við slíkum athugasemdum. Með kveðju, Sverrir Þór Sævarsson.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com