sunnudagur, október 03, 2004

-Ar Í Emm-
Á morgun, mánudag, kemur út þrettánda breiðskífa hljómsveitarinnar REM, en þeir koma einmitt frá Athens í Georgíufylki í Bandaríkjum Norður-Ameríku...ég er að reyna að teygja lopann svo bloggið virðist lengra og jafnvel innihaldsríkara.
Breiðskífa þessi hefur fengið nafnið Around the sun og ég er þegar búinn að heyra ca. fimm lög af þessari plötu og hljómar hún bara nokkuð vel. Í það minnsta held ég að það sé nokkuð ljóst að ég komi til með að fjárfesta í þessum grip á morgun...enda á ég alla þeirra diska frá og með Out of time auk þess sem ég á Murmurs, sem var þeirra fyrsta plata, auk nokkurra safnplatna...enda er þetta ansi fín hljómsveit.

Eitt sem er svolítið merkilegt fyrir svona nörda eins og mig...eins og ég nefndi áðan þá er REM núna að gefa út sína þrettándu skífu, en útgáfusaga þeirra nær yfir 21 ár. Til samanburðar má geta þess að á meðan Bítlarnir voru starfandi þá gáfu þeir út þrettán breiðskífur á liðlega sjö ára tímabili. Voru menn svona miklu frjórri í gamla daga?
...menn voru náttúrulega svo mikið í eiturlyfjum hérna áður fyrr, það hefur kannski haft sitt að segja....allavega, REM dagur á morgun.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com