-Jólin koma-
Á ferð minni um bæinn í kvöld (þ. 22.október NB) sá ég hvar búið var að hengja jólaskraut á eitt af húsum bæjarins. Svo framarlega sem þetta er ekki forstjóri IKEA sem býr þarna, og hann þá væntanlega að kynna jólavörur fyrirtækisins, þá jaðrar þetta við hreina geðveiki. Hefur fólk ekkert betra að gera um miðjan október en að henda upp jólaskrauti? Samkvæmt grófri talningu sem ég framkvæmdi bara núna rétt í þessu þá eru ennþá 63 dagar til jóla.
Hvernig væri að hefja jólaundirbúninginn á aðventunni svona einu sinni, ég held að það sé einmitt tilgangur aðventunnar...plís!
Gleðileg jól...og góðar stundir!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home