-Hvað gengur mönnum eiginlega til?-
Ég var að glugga í DV frá því í dag og rakst þar á plötudóm um nýju REM plötuna, Around the sun, og ég verð að segja að ég skil ekki hvað gagnrýnandanum gengur til. Nú ætla ég ekki að fetta fingur út í álit hans á plötunni, þó ég sé vissulega ósammála hans dómi, enda er engum manni hollt að fara út í rökræður um smekk fólks.
Það sem stakk mig í augun er niðurlag greinarinnar, sem ég ætla að birta hérna án þess að hafa fengið sérstakt leyfi til þess:
"Peter Buck talaði um að þeir legðu ferilinn að veði með þessari plötu (reyndar var Buck að tala um innihald textanna á plötunni en ekki tónlistina sem slíka, enda textarnir margir hverjir nokkuð pólitískir, innsk. Sverrir) - ég myndi skjóta mig ef ég væri í þeirra sporum."
Getur það flokkast undir faglega gagnrýni að mæla með því að listamaðurinn eða mennirnir fari og skjóti sig? Hefði maðurinn sagt þetta um íslenskan listamann, eða er allt í lagi að skrifa svona af því að herra Buck er erlendur og mun líklega aldrei verða þeirrar gæfu aðnjótandi að lesa þennan pistil?
Reyndar er þessi gagnrýnandi best þekktur fyrir að skrifa oft á tíðum heimskulega pistla um fótbolta, þannig að það var kannski ekki við miklu að búast í þessu tilfelli.
Það er vissulega gott og blessað að maðurinn sé ósáttur við að ein besta hljómsveit heimsins sendi frá sér plötu sem er undir meðallagi miðað við önnur verk sveitarinnar, en að mæla með því að þeir fari og skjóti sig finnst mér orðið fullmikið af því góða.
...annars held ég bara að ég fari núna og skjóti mig.
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home