sunnudagur, október 17, 2004

-Draumur um Nælon-
Jæja þá er loksins komið að því að segja frá þessum skemmtilega og undarlega draumi sem mig dreymdi fyrir nokkru.
Draumurinn hefst á því að ég er í rútu ásamt nokkrum félögum mínum, sýndist þetta bara vera fótboltaliðið Kóngarnir, og við erum að keyra á suðurlandi, nánar tiltekið á Selfossi. Eftir smástund stoppar rútan við hótel og inn kemur maður sem hóar í mig og biður mig um að koma með sér inná hótel. Þar göngum við dágóða stund um langa ganga og upp einhverjar hæðir. Svo eftir drykklanga stund vísar hann mér inní eitt herbergi og hverjar skyldu vera staddar þar? Jú auðvitað stúlkurnar í Nælon. Þær eru sem sagt bara að tjilla uppá herbergi og veita mér frekar litla eftirtekt (sem er undarlegt), nema stóra ljóshærða stelpan, hún var bara nokkuð vingjarnleg. Það sem gerist næst er svo það undarlegasta af öllu. Gaurinn sem fylgdi mér uppá herbergi dregur mig að einhverri tölvu og biður mig vinsamlegast um að kíkja á tölvuna af því að það sé búið að vera eitthvað vesen á henni. Ég sem veit varla hvað tölvur eru....og þar lýkur draumnum.

Nú má fólk ráða í þennan draum eins og það vill, en ég held að það eina sem þessi draumur segi mér er það að ég hafi horft á aðeins of marga þætti um stúlkurnar í Nælon í sumar.

...en þetta slær ekki út handboltadrauminn...hann er klassískur.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com