mánudagur, nóvember 22, 2004

-Stuð stuð stuð-
Ég skellti mér á tónleika með hinni fornfrægu hljómsveit Beach boys í kvöld. Margir höfðu efasemdir um þessa tónleika þar sem einungis tveir núverandi meðlimir hljómsveitarinnar voru í bandinu á gullaldarárum sveitarinnar. Það er hins vegar skemmst frá því að segja að þetta voru hinir bestu tónleikar. Drengirnir renndu í gegnum mörg af þeirra allra bestu lögum og toppuðu svo kvöldið með því að taka Back in the USSR eftir Bítlana, en Paul McCartney samdi það lag einmitt þegar hann var staddur á Indlandi ásamt fleira fólki (þ.á.m. Mike Love sem er forsöngvari Beach Boys í dag) hvar lögð var stund á andlega íhugun. Lag þetta er einmitt mikil stæling á hinum klassíska Beach Boys sörf stíl, en það veit náttúrulega allt hið gáfaða fólk sem les þessa síðu.
Þar fyrir utan flugu hinir ýmsu sígildu slagarar í kvöld, svo sem God only knows, Good vibrations, Sloop John B og svona gæti ég haldið lengi áfram.
Það eina sem pirraði mig við þessa tónleika var trommarinn í bandinu, hann var ekki alveg að gera gott mót í kvöld. Bestu trommuspretti kvöldsins átti annar hljómborðsleikari sveitarinnar, en hann settist við settið í einu lagi og trommaði mun betur en sjálfur trymbillinn.

Þá er vert að geta þess að fjöldi frægra manna og kvenna sótti þessa tónleika, til að mynda Óli Palli, Gaupi á stöð tvö og Halli. Ekki amalegt það.

Nú vil ég bara að einhver góður maður flytji inn Paul McCartney, Brian Wilson, REM, Radiohead og Dave Matthews Band og þá verð ég bara þokkalega sáttur.

Takk fyrir mig.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com