fimmtudagur, október 28, 2004

-Allt að gerast!-
Ég keypti mér nýjasta heftið af tónlistartímaritinu Q í dag...sem bæ ðe vei er ógeðslega dýrt...eníhú. Í blaðinu kennir margra grasa, en það sem vakti mesta athygli mína var lítil grein um kombökk hjá ákveðnum hljómsveitum. Til að mynda ku ganga sögur þess efnis að Roger Waters sé farinn að spjalla við fyrrum félaga sína úr Pink Floyd um hugsanlega tónleikaferð á næsta ári...mikið óskaplega væri nú gaman að því.
Ekki nóg með það, heldur hafa líka gengið sögur þess efnis að gamla Smiths tvíeykið Johnny Marr og Morrisey séu að íhuga að taka upp þráðinn og semja einhverja tónlist saman á næstu misserum. Mikið óskaplega væri gaman ef þetta myndi allt saman ganga í uppfyllingu.
...nú þurfa bara Bítlarnir að koma saman aftur og þá er allt orðið eins og það á að vera.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com