mánudagur, nóvember 08, 2004

-Er ég þá orðinn FM hnakki?-
Það gleður mig að tilkynna það að um helgina fékk ég í hendurnar leik allra leikja. Um er að ræða Football Manager 2005, arftaki hinna klassísku leikja er báru nafnið Championship Manager...eða CM eins og hinir innvígðu kölluðu þá, og hlýtur þá nýi leikurinn að fá hið miður fallega nafn FM.
Það er skemmst frá því að segja að leikur þessi er hins bestasta skemmtun og um þessar mundir er Liverpool liðið í efsta sæti í Úrvalsdeild undir minni stjórn, hefur unnið fyrstu fimm leikina í deildinni og er með markatöluna 16-2...ekki amalegur árangur það.

...það eru góðar stundir framundan.

Góðar stundir.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com