-Undarlegar skeytasendingar-
Í morgun fékk ég sent sms skeyti frá Símanum, án þess að ég hafi beðið sérstaklega um það, sem innihélt eftirfarandi texta:
Þú ert í hagstæðustu áskriftaleið Símans GSM miðað við notkun sl. þrjá mánuði. Kveðja, Starfsfólk Símans.
Þykir mér nokkuð undarlegt að fyrirtækið mitt sé að eyða tíma og einhverju fé í að segja mér að ég sé í réttri áskriftaleið og allt sé bara í góðu standi.
Þetta minnir mig svolítið á næturverðina sem tóku til starfa í Reykjavík seint á 18.öld og höfðu þann starfa helstan að hringja kirkjuklukkunni á klukkutíma fresti á næturnar og gengu svo um bæinn og hrópuðu eitthvað á þessa leið:
Klukkan er þrjú og allt er í lagi!
...að því gefnu að allt væri í lagi. Einstaka sinnum kom þó fyrir að eitthvað væri ekki í lagi og þá létu þeir vita af því.
...en klukkan er sem sagt korter yfir tíu, ég er í réttri áskriftaleið hjá Símanum og allt er í lagi!
Góðar stundir.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home